föstudagur, 10. október 2008

Kveðjur frá grunnbúðum.

Var að tala við Berglindi og allt gott að frétta. Þau eru búin að vera að fara vel upp fyrir 5000m til að aðlagast hæð og niður aftur í grunnbúðir. Verið er að plana að fara 13.okt í Búðir 1 (5164m) og vera þar tvær nætur. Síðan í Búðir 2 og vera þar tvær nætur og fara síðan í Búðir 3. Þau eru að huga að tilraun við tindinn þann 18.okt. Það eru allir kátir og senda bestu kveðjur heim.

2 ummæli:

Lára sagði...

Gott að allt gengur vel :)

Nafnlaus sagði...

Mjög gott ad geta fylgst med. Vona ad allt gangi vel og hopurinn njoti fararinnar. Veit ad tau syna fulla skynsemi i barattuinni vid fjallid og haedina.
Kvedja fra Siggu (mömmu Kára)sem stödd er i Tübingen.