mánudagur, 28. júlí 2008

Undirbúningur

Undirbúningur er í fullum gangi og hefur staðið yfir frá því sl. haust. Veturinn var vel nýttur í alls kyns fjallamennsku, ss. ísklifur, fjallabrölt og skíðaferðir. Það er eitt og annað sem þarf að huga að...

Flug -frágengið
Leyfisgjöld -frágengið
Visa -í vinnslu
Bólusetningar -langt komnar
Tryggingar - í vinnslu
Yfirvigt -í vinnslu
Lyf og sjúkrabúnaður -í vinnslu
Klifurbúnaður, tjöld, svefnpokar ofl. -eitt og annað sem þarf að endurnýja -í vinnslu
Fatnaður -Cintamani ætlar að klæða okkur upp.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hei,
Frábært að þið séuð með heimasíðu, það verður spennandi að fylgjast með ykkur!
kveðja
Margrét